Um félagiđ
Forsíđa
Fréttir
Stjórn
Verkefni
2010 | Norđurljósablús
2009 | POPP & KÓK
2009 | Norđurljósablús
2008 | Bítl
2008 | Norđurljósablús
2007 | Eitís
2007 | Norđurljósablús
2006 | American Graffiti
2006 | Norđurljósablús
2005 | Rokk í 50 ár
2004 | Diskó
2003 | Međ allt á hreinu
2002 | Slappađu af!
ROKK Í 50 ÁR Prenta Rafpóstur
mánudagur, 22 ágúst 2005
Hornfirska skemmtifélagiđ er nú ađ hefja vetrarstarfiđ og fjórđa sýning félagsins verđur frumsýnd á Hótel Höfn 15. október nk.  Verkefni haustsins heitir Rokk í 50 ár en í ár eru einmitt 50 ár síđan Bill Haley gaf út Rock around the clock og markađi međ ţví upphaf rokksins ađ mati rokkspekúlanta.

Veisla fyrir rokkara
Andrea Jónsdóttir, dagskrárgerđarmađur á Rás 2 hefur gengiđ til liđs viđ Skemmtifélagiđ og hefur hún umsjón međ lagavali.  Andrea er sem kunnugt er einn helsti rokkfrćđingur landsins og mun hafa hönd í bagga međ Hornfirskum skemmtikröftum. 
Í sýningunni Rokk í 50 ár verđur fariđ í gegn um rokksöguna og ţau lög eđa flytjendur teknir fyrir sem skiptu sköpum fyrir ţróun rokksins.  Hornfirskir skemmtikraftar bregđa sér í gerfi jafn ólíkra listamanna eins og Elvis, Ninu Hagen, Jimi Hendrix, Kate Bush, Bob Dylan og Janis Joplin.  Bítlarnir, Nirvana, Led Zeppelin og Queen birtast á nýjan leik á Hótel Höfn og ţví ćtti engum ađ leiđast á sýningu hjá Hornfirska skemmtifélaginu

Helgarpakkar til Hornafjarđar
Í tengslum viđ sýningarnar verđur bođiđ upp á pakka sem henta vel starfsmannafélögum og fleiri hópum sem vilja leggja land undir fót og gera sér dagamun.  Í pakkanum verđur gisting á Hótel Höfn, kvöldverđur, rokksýning og dansleikur.  Ađ auki verđur ýmis önnur afţreying í bođi á stađnum.   Samstarfsađilar Hornfirska skemmtifélagsins eru Hótel Höfn, Gudis ehf, Frumkvöđlasetur Austurlands og ferđaţjónustuađilar í Austur-Skaftafellssýslu.  Menningarráđ Austurlands styrkti Skemmtifélagiđ myndarlega í síđustu úthlutun sinni.

Blúsinn nćstur
Rokk í 50 ár er fjórđa verkefni Hornfirska skemmtifélagsins.  Alltaf hefur veriđ frumsýnt á Hótel Höfn og tvívegis hafa sýningar félagsins veriđ settir upp á veitingahúsinu Broadway.
Nćsta verkefni félagsins er blúshátíđin Norđurljósablús, sem verđur á Höfn í Hornafirđi 2. - 4. mars 2006.  Ţar kemur fram sćnska hljómsveitin Emil & the Ecstatics og helstu blústónlistarmenn landsins leika einnig á hátíđinni.  Norđurljósablús er í samvinnu viđ Blúshátíđ Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar gefa:
Heiđar Sigurđsson s. 899-4619
Kristín Gestsdóttir s. 898-6701
Sigurđur Mar Halldórsson s. 864-0202

 
< Fyrri

Hornfirska skemmtifélagiđ - info@skemmtifelag.is