| Norðurljósablús 2009 |
|
Blúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í fjórða sinn á Höfn í Hornafirði dagana 5. til 7. mars næstkomandi. Það hefur sjaldan verið meiri blús í íslensku samfélagi en einmitt um þessar mundir. Fólk hefur í gegn um árin notað blúsinn til að syngja sig frá erfiðleikunum og gleyma stað og stund í tónlistinni og þannig verður það á Norðurljósablús. Til þess að gefa sem allra flestum tækifæri á að finna blústaktinn í hjartanu verður frítt inn á alla tónleika hátíðarinnar. Blúsað um allan bæ Aðal tónleikarnir hvert kvöld hátíðarinnar verða á Hótel Höfn. Eftir þá verða blústónleikar samtímis á þremur stöðum í bænum, Hótel Höfn, Kaffi Horninu og Veitingahúsinu Víkinni. Auk þess munu feðgarnir Mugison og Papa Mug skemmta matargestum á Humarhöfninni. Á föstudaginn mun Mugison heimsækja grunnskólabörn á Höfn og kynna tónlistina sína fyrir þeim. Á sunnudaginn verður blúsmessa í Hafnarkirkju þar sem Rökkurbandið mun sjá um tónlistina.
DAGSKRÁ FIMMTUDAGUR 5. MARS
FÖSTUDAGUR 6. MARS Hótel Höfn Kaffi Hornið Víkin
LAUGARDAGUR 7. MARS Nýheimar Hótel Höfn Kaffi Hornið. Víkin
SUNNUDAGUR 8. MARS |












