| Diskó |
|
|
|
|
Þriðja verkefni Hornfirska skemmtifélagsins, Diskó, var frumsýnt á Hótel Höfn 1. október 2004. Í sýningunni fluttu sjö söngvarar og fimm manna hljómsveit alla heitustu diskósmellina sem hljómuðu í Hollywood við Ármúla og fleiri stöðum á diskótímanum. Þetta voru lög sem allir þekkja í flutningi diskódrottninganna Donnu Summer, Tinu Charles og Gloriu Gaynor og að sjálfsögðu eru Bee Gees, Boney M, Abba og fleiri með í pakkanum. Stemmningin í salnum var ólýsanleg og gestirnir dönsuðu á stólum og borðum. Söngvarar í sýningunni voru Birgir Fannar Reynisson, Edda Bjarnadóttir, Hulda Rós Sigurðardóttir, Kristjón Elvarsson, Maríanna Jónsdóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir, og Þórhildur Magnúsdóttir. Hljómsveitina skipuðu Bjartmar Ágústson bassaleikari, Ólafur Karl Karlsson trommuleikari, Sigurður Mar Halldórsson, Birgir Fannnar Reynisson slagverksleikari og Heiðar Sigurðsson sem jaftframt var tónlistarstjóri. Leikstjóri var Kristín Gestsdóttir. |















