|
Mánudagur, 22. ágúst 2005 17:49 |
Hornfirska skemmtifélagið er nú að hefja vetrarstarfið og fjórða sýning félagsins verður frumsýnd á Hótel Höfn 15. október nk. Verkefni haustsins heitir Rokk í 50 ár en í ár eru einmitt 50 ár síðan Bill Haley gaf út Rock around the clock og markaði með því upphaf rokksins að mati rokkspekúlanta.
Veisla fyrir rokkara Andrea Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 2 hefur gengið til liðs við Skemmtifélagið og hefur hún umsjón með lagavali. Andrea er sem kunnugt er einn helsti rokkfræðingur landsins og mun hafa hönd í bagga með Hornfirskum skemmtikröftum. Í sýningunni Rokk í 50 ár verður farið í gegn um rokksöguna og þau lög eða flytjendur teknir fyrir sem skiptu sköpum fyrir þróun rokksins. Hornfirskir skemmtikraftar bregða sér í gerfi jafn ólíkra listamanna eins og Elvis, Ninu Hagen, Jimi Hendrix, Kate Bush, Bob Dylan og Janis Joplin. Bítlarnir, Nirvana, Led Zeppelin og Queen birtast á nýjan leik á Hótel Höfn og því ætti engum að leiðast á sýningu hjá Hornfirska skemmtifélaginu Helgarpakkar til Hornafjarðar Í tengslum við sýningarnar verður boðið upp á pakka sem henta vel starfsmannafélögum og fleiri hópum sem vilja leggja land undir fót og gera sér dagamun. Í pakkanum verður gisting á Hótel Höfn, kvöldverður, rokksýning og dansleikur. Að auki verður ýmis önnur afþreying í boði á staðnum. Samstarfsaðilar Hornfirska skemmtifélagsins eru Hótel Höfn, Gudis ehf, Frumkvöðlasetur Austurlands og ferðaþjónustuaðilar í Austur-Skaftafellssýslu. Menningarráð Austurlands styrkti Skemmtifélagið myndarlega í síðustu úthlutun sinni.
Blúsinn næstur Rokk í 50 ár er fjórða verkefni Hornfirska skemmtifélagsins. Alltaf hefur verið frumsýnt á Hótel Höfn og tvívegis hafa sýningar félagsins verið settir upp á veitingahúsinu Broadway. Næsta verkefni félagsins er blúshátíðin Norðurljósablús, sem verður á Höfn í Hornafirði 2. - 4. mars 2006. Þar kemur fram sænska hljómsveitin Emil & the Ecstatics og helstu blústónlistarmenn landsins leika einnig á hátíðinni. Norðurljósablús er í samvinnu við Blúshátíð Reykjavíkur. Nánari upplýsingar gefa: Heiðar Sigurðsson s. 899-4619 Kristín Gestsdóttir s. 898-6701 Sigurður Mar Halldórsson s. 864-0202 |